Fréttir
2/09/2010
Kurtogpí hlaut viðurkenningu í opinni samkeppni um Hjúkrunarheimili á Eskifirði.

Í ágúst sl. tók Steinþór Kári Kárason við stöðu prófessors í arkitektúr við Hönnunar og Arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands. Um er að ræða 50% stöðu sem hann sinnir jafnhliða rekstri Kurtogpi.
Þetta er í fyrsta sinn sem ráðið er í stöðu prófessors í arkitektúr við íslenskan háskóla.

Þann 4. nóvember nk. mun Kurtogpí flytja fyrirlestur í Listasafni Reykjavíkur, þar sem fjallað verður um ný og nýleg verk af okkar borðum.

30/03/2010
Fjallað er um Menntaskóla Borgarfjarðar í marshefti DOMUS. Lucy Bullivant skrifar um Kurtogpi undir yfirskriftinni ‘Icelandic scenario’

12/02/2010
Nýtt húsnæði i8 Gallerís opnar nýtt húsnæði að Tryggvagötu 16. Allri starfsemi i8 er þar komið fyrir í gamalli vörugeymslu þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja.
Kurtogpí sá um alla hönnun í galleríinu, þ.m.t húsgögn

30/01/2010
12. febrúar nk. mun Kurtogpí halda fyrirlestur á málþingi á Stockholm Furniture Fair og fjalla þar um Menntaskóla Borgarfjarðar, með sérstaka áherslu á hönnunarferlið, en yfirskrift málþingsins er ‘What were they thinking?’

28/11/2009
Menntaskóli Borgarfjarðar kynntur í desemberhefti Architectural Review, ásamt hinum 24 verkefnum sem komust í úrslit í AR Awards for emerging architecture

26/11/2009
Kurtogpí hefur verið valið í úrslit í AR Awards for emerging architecture, sem Architectural Review stendur fyrir, fyrir Menntaskóla Borgarfjarðar.
Verðlaunin verða afhent í RIBA í London 1. Desember nk. og sýning á þeim verkum sem komust í úrslit opnuð á sama stað.
Í ár voru um 700 verk send inn og 25 valin í úrslit

7/11/2009
14. Nóvember nk. mun Steinþór Kári Kárason halda fyrirlestur um verk Högnu Sigurðardóttur arkitekts á málþingi tileinkuðu henni. Fyrirlesturinn nefnist ‘Högna, Kahn og Herbergið’.
Aðrir fyrirlesarar eru Jes Einar Þorsteinsson arkitekt, Margrét Harðardóttir arkitekt og Þóra Sigurðardóttir myndlistarmaður

26/10/2009
Bókin Íslensk Samtímahönnun –húsgögn, vöruhönnun og arkitektúr kemur út 30. Október nk. Bókin er gerð af tilefni sýningarinnar Íslensk hönnun 2009. Útgefendur eru Íslensk Hönnunarmiðstöð og Crymogea.

22/10/2009
Kurtogpi hefur verið boðið að vera fulltrúar Íslands á Norrænni arkitektasýningu á Stockholm Furniture Fair í febrúar nk. þar sem Menntaskóli Borgarfjarðar verður sýndur.
Aðrir sýnendur verða; Helen&Hard frá Noregi, K2S frá Finnlandi, Kjellander_Sjöberg frá Svíþjóð og Dorte Mandrup frá Danmörku

20/10/2009
Íslensk hönnun 2009 opnar í Ketilhúsinu á Akureyri laugardaginn 24. Október nk. Kurtogpi sýnir Menntaskóli Borgarfjarðar á sýningunni sem stendur til 14. nóvember.

25/05/2009
Steinþór Kári Kárason verður prófdómari á lokayfirferð á verkum nemenda Deborah Saunt í EPFL, þar sem hún er gestaprófessor, en hún rekur ásamt David Hills arkitektastofun DSDHA í London.

27/05/2009
Umfjöllun um einbýlishúsið að Góðakri byrtist í tímaritinu "Forum AID" 02/2009

15/05/2009
Kurtogpi hannaði sýninguna "Íslensk hönnun 2009" að Kjarvalsstöðum. Kurtogpi eru einnig þáttakendur á sýningunni sem er hluti af Listahátíð Reykjavíkur 2009.

6/04/2009
Umfjöllun um Menntaskóla Borgarfjarðar byrtist í tímaritinu "Hús og Híbýli" 5.tbl.2009

5/03/2008
Menntaskóli Borgarfjarðar hlýtur Menningarverðlaun DV fyrir byggingarlist 2008

20/01/2009
Umfjöllun um Menntaskóla Borgarfjarðar byrtist í tímaritinu "Forum AID" 01/09

10/12/2008
Einbýlishúsið að Perlukór komst í úrslit "Forum Aid" verðlaunanna 2008

16/10/2008
Nýbygging Menntaskóla Borgarfjarðar er vígð

17/07/2008
Kurtogpi fær þriðja sæti í opinni samkeppni um nýjar byggingar fyrir Listaháskóla Íslands

2/05/2008
Kurtopi heldur fyrirlestur um verk sín í Forum d'architecture Fribourg í Sviss, 20 maí 2008