Um okkur
Starfsfólk
Samband
 
Kurtogpí er alhliða arkitektastofa sem er rekin af stofnendum sínum, Ásmundi Hrafni Sturlusyni og Steinþóri Kára Kárasyni. Stofan er stofnuð árið 2004 eftir nokkur samstarfsverkefni stofnendanna. Innan stofunnar er dýrmæt reynsla í fjölbreyttum verkefnum sem Ásmundur og Steinþór hafa unnið að, bæði hjá Kurtogpí sem og hjá öðrum jafnt á Íslandi sem erlendis, , t.d. í London, Lúxemborg, Kanada, Sviss, Berlín, Hollandi og Póllandi. Steinþór var umsjónararkitekt hjá Tony Fretton Architects á Breska Sendiráðinu í Varsjá í Póllandi og Ásmundur var umsjónararkitekt á Íslandi í samstarfsverkefni Tark og Atelier Jean Nouvel í samkeppni um Tónlistar- og Ráðstefnuhús við Reykjavíkurhöfn.
Verkefni stofunnar eru margbreytileg að gerð og mælikvarða, allt frá litlum breytingum og endurgerðum eldri húsa til stærri opinberra bygginga. Stofan hefur ávalt lagt áherslu á að vinna verkefnin í gegn, allt frá mælikvarða umhverfisins til smæstu útfærslna byggingarinnar, þar sem náið samband við og samvinna með notandanum leiðir vinnuna.

Kurtogpí nálgast hvert verkefni í þeirri trú að lausnin sé falin í umhverfinu, manngerðu og nátturulegu jafnt sem félagslegu og sögulegu. Hlutverk okkar er að draga lausnina fram í arkitektúr sem bæði undirstrikar og talar við umhverfið og elur á tilfinningu og ábyrgð fyrir því. Í Arkitektúr mótaður af umhverfi sínu og mótar það um leið. Í Arkitektúr sem er rammi utan um starfsemi og þróast í gegnum náið samband við notandann. Í Arkitektúr sem einkennist af notagildi og varanleika, en er um leið síbreytilegur og hefur svigrúm til að eldast og þroskast með eðlilegri notkun. Í Arkitektúr sem er flæðandi og virkar en býr til pláss fyrir þann sem nýtur hans, fyrir hans eigið ímyndunarafl og skynjun á byggingunni og umhverfi hennar, nær og fjær. Í Arkitektúr sem segir sögu…..
Þetta kemur fram í verkefnum stofunnar, hvort sem um er að ræða byggingar í nánu og þröngu borgarumhverfi, eins og tillögu okkar að LHÍ (3ju verðlaun í opinni samkeppni), í óreiðukenndum úthverfum líkt og einbýlishús við Perlukór (úrsslit í Forum AID verðlaunum) eða í stórbrotnu landslagi líkt og Menntaskóli Borgarfjarðar (Menningarverðlaun DV 2008 og úrslit í AR Emerging Architecture awards 2009) þar sem markmiðið er að tala við og segja frá.

Samhliða rekstri stofunnar hafa Ásmundur og Steinþór verið virkir kennslu við Arkitektúr og Hönnunardeild Listaháskóla Íslands sem stundakennarar. Steinþór var fagstjóri í arkitektúr 2004-2006 og gegnir nú stöðu prófessors í arkitektúr við deildina.